HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftanes sigraði Stólana í framlengdum leik í Síkinu

Álftanes sigraði Stólana í framlengdum leik í Síkinu

Álftanes fór með sigur af hólmi gegn Tindastól í framlengdum leik á Sauðárkróki í Bónus deild karla í kvöld, 105-108. Stigahæstur hjá gestunum var Dedrick Deon Basile með 26 stig og 13 stoðsendingar. Jordan Semple setti 18 og var með 9 fráköst. Fyrir heimamenn var nýr leikmaður stólanna, Nemanja Ðurisic stigahæstur með 29 stig.

Flestar, ef ekki allar opinberar spáir eru með þessi tvö lið í tveim efstu sætum deildarinnar á tímabilinu og ljóst var að um hörkuleik væri að ræða. Öllu var tjaldað til og mæting var til fyrirmyndar hjá stuðningsmönnum beggja liða.

Fyrsti leikhluti einkenndist af mikilli hörku. Bæði lið voru staðráðin í að spila hörku vörn og finna línuna. Stólarnir byrjuðu betur með 10-0 sprett, en Álftnesingar svöruðu af krafti og eftir góð sóknarfráköst, þriggja stiga körfur og góða vítanýtingu var staðan orðin 12-9. Frá því var barist að fullum krafti í hverri sókn og þvílík ánægja að fá að fylgjast með. Fyrsti leikhluti endar 27-19, Tindastól í vil.

Álftnesingar byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti og komu muninum niður í tvö stig. Tindastóll tók þá leikhlé og aukinn hiti færðist í leikinn eftir það, þrátt fyrir að hann hafi nú ekki verið neitt kaldur fyrir. Álftanes jafnaði leikinn í 37-37 eftir þrist frá Sigurð Pétursson, við mikinn fögnuð stuðningsmanna, og hvað helst Frank Aaron Booker á bekknum. Júlíus Orri svaraði hins vegar strax í næstu sókn með sínum eigin þrist og komust Álftnesingar ekkert yfir í fyrri hálfleik sem endar 50-44.

Vegferð heimamanna hélt áfram í þriðja leikhluta og komust þeir upp í 74-60. Leikhlutinn endaði svo á flautuþrist frá Davis Geks og staðan orðin 86-77.

Álftnesingar settu stöðuga pressu á forskot Tindastóls í fjórða leikhluta. Þegar tæpar 5 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma brutust svo út væg slagsmál á vellinum. Vont er að segja hvað nákvæmlega gerðist í hitanum en gestirnir uppskáru 2 víti og boltann þar að auki. Eftir það fór vörnin hjá stólunum að gefa sig og fékk Basile opinn þrist, og skömmu síðar var staðan orðin jöfn, 92-92. Lokamínútur fjórða leikhluta voru stál í stál og staðan 96-96 í venjulegum leiktíma.

Framlenging

Allt blek í báðum pennunum mínum kláraðist svo ég þurfti að aðlagast tækninni og skrifa beint í tölvuna. Allt var í járnum ennþá, Basile og Semple voru að fara á kostum fyrir gestina og Ðurisic var að halda þessu á floti hjá stólunum. Staðan orðin 103-104.

Martins Laksa rak olnbogann í leikmann Tindastóls, Nemanja Ðurisic og var sendur inn í búningsklefa seint í framlengingu. Bæði lið tóku tvö víti eftir mikinn hita og staðan orðin 105-108 þegar 4.2 sekúndur voru eftir. Stólarnir tóku boltann inn og úr varð þriggja stiga skot Dee Bost sem vildi ekki ofan í. Lokatölur 105-108 og sigur Álftanes staðreynd.

Tölfræði leiks

Myndasafn

Umfjöllun / Birkir Hallbjörnsson

Fréttir
- Auglýsing -