Tindastóll hefur samið á ný við bandaríska leikmanninn Maddie Sutton og mun hún ganga til liðs við hópinn á næstu vikum.
Maddie hefur látið mikið að sér kveða bæði innan vallar sem utan í Síkinu og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks með mikilli jákvæðni og góðri nærveru.
Í vor mætti hún í podcast-þáttinn Stólinn, þar sem hún fór ítarlega yfir feril sinn, áskoranir og sýn sína á skagfirska samfélagið.
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að neðan





