Njarðvíkingar sóttu dýrmæt tvö stig í Laugardalshöll í kvöld með sex stiga sigri á baráttuglöðu liði Ármanns, 81–87, í 5. umferð Bónus deildar kvenna. Leikurinn var í járnum fram á lokamínúturnar þar sem nýliðar Ármanns veittu grænum harða keppni, en reynsla Njarðvíkur tryggði þeim á endanum sinn fjórða sigur í fyrstu fimm umferðunum og toppsætið ásamt Stjörnunni og Grindavík.
Rætt var við Einar Árna Jóhannsson, þjálfara Njarðvíkur, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.





