HomeBónus deildinBónus deild kvennaMeistararnir sluppu með skrekkinn í Laugardalshöll

Meistararnir sluppu með skrekkinn í Laugardalshöll

Njarðvík, ríkjandi Íslandsmeistarar, hafði sex stiga sigur á Ármanni í Laugardalshöll í kvöld, 81-87, í Bónus deild kvenna. Ármenningar bíða því enn fyrstu stiga sinna á leiktíðinni en sýndu í kvöld að þær eiga fullt erindi í deildina.

Gestirnir byrjuðu betur og náðu fljótt forskoti sem Ármenningar náðu þó aldrei að láta vaxa sér í augum. Staðan í hálfleik var 35-47, en heimakonur voru sprækar eftir hlé, settu niður alls þrettán þriggja stiga skot í leiknum og unnu þriðja leikhlutann 27-20. Þegar rúm mínúta var eftir munaði aðeins þremur stigum, en Njarðvíkingar héldu haus á lokasprettinum. Nítján tapaðir boltar heimakvenna reyndust dýrkeyptir, en úr þeim sóttu gestirnir 24 stig.

Diamond Battles var stigahæst hjá Ármanni með 24 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar, og fyrirliðinn Jónína Þórdís Karlsdóttir skoraði 21 stig og tók 7 fráköst. Hjá Njarðvík var Brittany Dinkins atkvæðamest með 27 stig og 9 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir skoraði 22 stig og Emma Grace Theódórsdóttir var með 19 stig og 13 fráköst.

Njarðvík heldur með sigrinum í við toppliðin en Ármann heldur stigalaust í næsta verkefni

Tölfræði leiks

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -