Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar gerðu þeir Davíð Eldur, Jón Frí og Mummi Jones upp síðustu umferð í Bónusdeild karla og fóru yfir helstu fréttir vikunnar. Samhliða umræðu um bestu liðin á hálfum velli beindu félagarnir sjónum sínum að 1. deild karla og stilltu upp lista yfir fimm leikmenn sem eru of góðir fyrir 1. deild en hafa aldrei náð að stimpla sig inn í Bónusdeildina.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Of góðir fyrir 1. deild en aldrei náð að stimpla sig inn í Bónus
- Gísli Hallsson – Höttur
- Sigvaldi Eggertsson – Þór
- Viktor Steffensen – Breiðablik
- Daníel Ágúst Halldórsson – Fjölnir
- Sölvi Ólafsson – ÍA
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.





