HomeBónus deildinBónus deild kvennaÞrír leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna

Þrír leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna

Þrír áhugaverðir leikir fara fram í Bónus deild kvenna í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15.

Í Laugardalshöll freistar Ármann þess að ná í sín fyrstu stig á leiktíðinni þegar Njarðvík, sem situr í öðru sæti deildarinnar með 6 stig, kemur í heimsókn. Á Ásvöllum taka Haukar á móti KR, en Vesturbæingar hafa farið vel af stað og eru jafnir Njarðvík og Stjörnunni með sex stig í öðru til fjórða sæti. Þá mætast Keflavík og Stjarnan í Blue-höllinni, þar sem bikarmeistarar Keflavíkur þurfa nauðsynlega á tveimur stigum að halda eftir erfiða byrjun á mótinu gegn Garðbæingum sem eru í toppbaráttunni.

Leikir dagsins í Bónus deild kvenna:

 19:15 Ármann – Njarðvík

 19:15 Haukar – KR

 19:15 Keflavík – Stjarnan

Fréttir
- Auglýsing -