Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar gerðu þeir Davíð Eldur, Jón Frí og Mummi Jones upp síðustu umferð og fóru yfir helstu fréttir vikunnar í Bónusdeild karla. Sérfræðingar þáttarins rýndu sérstaklega í sóknarleik liðanna þegar hægist á leiknum og stilltu upp lista yfir fimm góðum liðum á hálfum velli það sem af er tímabili.
Fimm bestu liðin á hálfum velli

1. Álftanes
Eru með 1,33 stig í sókn og bættu bestu sókn allra tíma með frammistöðu sinni í síðustu umferð gegn Keflavík. Dedrick Basile er með frábært pull-up game, splittar hindrunum (screens) og sækir þægilega á hringinn. Jordan Semple og Collin Pryor klára í dunkernum eftir að vörnin brotnar aðeins, ásamt því að liðið keyrir góð skotkerfi fyrir Martins Laksa og fleiri. Þeir skora 1,33 stig í sókn í heildina með 27 stigum úr hraðaupphlaupum, en eru elite á hálfum velli með 1,21 stig í sókn.
2. Höttur
Komnir lengst í sínu. Marquise Jackson hefur verið frábær með 24,0 stig og 7,3 stoðsendingar í leik. Liðið er frábært í sóknarfráköstum og jafnt KR með flest stig úr þeim, eða samtals 47 stig. Þeir skjóta boltanum vel fyrir utan, með 40% þriggja stiga nýtingu, og margir taka skot í miklu magni (volume): Marquise Jackson (10/18), Obie Trotter (7/16), Adam Eiður Ásgeirsson (6/17), Sveinn Búi Birgisson (5/13) Bætingin milli leikja er greinileg: skorið fór úr 77 í 103 og svo í 108 stig, tapaðir boltar úr 21 í 14 og niður í 6, stoðsendingar fóru úr 14 í 17 og upp í 25, og stig úr öðrum tækifærum (second chance points) fóru úr 11 í 17 og loks í 19 stig.

3. Keflavík
Jamir Chaplin er hrein stigavél (walking bucket) með 28,0 stig á 67% nýtingu, en Hilmar Pétursson og Jaka Brodnik eru líka með 62% og 68% nýtingu. Þeir eiga enn Braga Guðmundsson aðeins inni. Sem lið skjóta þeir 50% af vellinum og 40% í þriggja stiga skotum, og vintage Jaka Brodnik er mættastur. Keflvíkingar eru með næstbestu sóknina í deildinni en fá töluvert meira af sínum stigum úr hraðaupphlaupum en Höttur, eða 24 stig hjá Keflavík á móti 9 stigum hjá Hetti. Líður alls ekki illa á hálfum velli og sér í lagi ef Jamir Chaplin er einhverstaðar nálægt boltanum.
4. Valur
Valsmenn vita upp á hár hvernig þeir ætla að skora körfur. Þeir spila aðeins frískari bolta en í fyrra og hafa verið að loka jöfnum leikjum af öryggi. Kári Jónsson er með þetta sérstaka brak-gen á ögurstundu og Pablo Bertone getur alltaf fundið og búið til skot.
5. Sindri
Kaleb Higgins getur brotið niður hvaða vörn sem er, skorað sjálfur og búið til galopin skot fyrir liðsfélaga sína. Martins Meiers er vel skólaður og leit vel út gegn Tindastóli, þótt það blekki aðeins augað hvað hann dettur auðveldlega í gólfið. Þeir eru með 66% og 68% nýtingu í tveggja stiga skotum, sem er það mesta á hálfum velli. Vandamálið er að þegar vörnin sogast inn í teig þá er Sindri að skjóta hræðilega; þeir fá flott færi en eru einungis með 24% nýtingu í þriggja stiga skotum eftir þrjá leiki. Sindri er einum knockdown Bosman-vængmanni frá því að vinna liðin í kringum sig og jafnvel kýla eitthvað upp töfluna.
Næstir inn: Grindavík
Tölfræðin segir Grindvíkinga með verstu sóknina í deildinni á hálfum velli, en það skrifast að miklu leyti á magnið af vondu skotum sem Jeremy Pargo tók í fyrstu tveimur leikjunum. Grindvíkingar eru hins vegar næstir inn á listann því þegar Jeremy Pargo og DeAndre Kane eru komnir í gang eru þeir gríðarlega skeinuhættir. Gegn Stjörnunni skoruðu þeir 56 stig inni í teig á 70% nýtingu, þar sem Mirza Bulic setti 10 af 13 skotum sínum, mikið til úr óáreittum sniðskotum eftir hindranir og rúll (pick and roll layups). Árásir DeAndre Kane á körfuna litu vel út, Ragnar Bragason setti skot og heildarjafnvægið á sóknarleik liðsins var miklu betra.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




