Martin Hermannsson lék við hvurn sinn fingur og gaf heilar níu stoðsendingar ásamt því að skora sex stig á rúmu korteri þegar Alba Berlin lagði Ratiopharm Ulm, 98:82.
Þessi öruggi 16 stiga heimasigur stöðvaði þriggja leikja taphrinu þýsku meistaranna, sem sátu óvenjulega neðarlega í 13. sæti fyrir leikinn.




