NBA-leikmaðurinn Malik Beasley mun játa sök í alríkismáli sem höfðað hefur verið gegn honum í Bandaríkjunum vegna hlutdeildar í veðmálasvindli og hagræðingu úrslita, samkvæmt frétt Eurohoops sem vísar í The Athletic. Hinn 29 ára gamli bakvörður hefur átt í formlegum viðræðum við bandaríska dómsmálaráðuneytið og ákveðið að semja frekar en að berjast gegn ákærunum fyrir dómstólum.
Málið hófst formlega síðastliðið sumar þegar sex einstaklingar voru ákærðir fyrir mútur í íþróttum, fjársvik og peningaþvætti. Samkvæmt gögnum saksóknara hófst atburðarásin þegar Beasley safnaði milljóna dollara spilaskuldum við fyrrum liðsfélaga sinn, Ed Davis. Til þess að greiða upp skuldina samþykkti Beasley að hagræða eigin frammistöðu í leikjum Milwaukee Bucks á 2023–24 leiktíðinni. Samverkamenn hans nýttu sér innherjaupplýsingarnar til að veðja háum fjárhæðum á að Beasley myndi ná undir ákveðnum tölfræðimörkum (e. under prop bets).
Rannsakendur fundu fjóra leiki frá byrjun árs 2024 þar sem hagræðingin fór fram. Planið fór þó út um þúfur í einum leik gegn Brooklyn Nets þegar Beasley tók óvart of mörg fráköst og fór yfir fyrirfram ákveðna frákastalínuna.
Eftir að þrír aðrir sakborningar í málinu tilkynntu að þeir hygðust játa sök ákvað Beasley að stíga sama skref. Málið hefur sett NBA-feril hans í algjört frost, en hann hefur leikið 621 leik í deildinni á níu ára ferli. Síðan málið kom upp hefur hann aðeins leikið stuttan tíma í Púertó Ríkó með liðinu Cangrejeros de Santurce, sem er í eigu tónlistarmannsins Bad Bunny, á meðan umræðan um leikmannaveðmál í norður-amerískum íþróttum verður sífellt háværari.




