HomeFréttirSauð upp úr á milli liðsfélaga: Reknir út úr húsi og féllu...

Sauð upp úr á milli liðsfélaga: Reknir út úr húsi og féllu úr leik

Ótrúlegt atvik átti sér stað í mexíkósku LNBP-deildinni þegar samherjarnir Sindarius Thornwell og Mikhael McKinney hjá Dorados de Chihuahua réðust hvor að öðrum í fjórða leik liðsins í úrslitakeppninni gegn Fuerza Regia.  

Rifrildið braust út undir lok þriðja leikhluta eftir dæmda villu og endaði með slagsmálum inni á vellinum, sem varð til þess að dómararnir ráku báða leikmennina af velli. Eftir brottreksturinn missti Chihuahua tökin á jöfnum leik og tapaði 97–106, og er þar með úr leik í úrslitakeppninni.  

Hér áttu í hlut öflugir atvinnumenn; Thornwell lék á fimm tímabilum í NBA-deildinni með LA Clippers, Pelicans og Magic áður en hann fór til Evrópu, en McKinney á að baki langan atvinnumannaferil víða um heim. Mótherjar þeirra, Fuerza Regia, eru einmitt ríkjandi meistarar í mexíkósku deildinni – þar sem úrslitakeppnin fer fram á haustin og lýkur í nóvember eða desember – og eru nú komnir áfram eftir þetta dýrkeypta upphlaup heimamanna.

Hér má sjá myndband af átökum liðsfélagana

Fréttir
- Auglýsing -