Þrír leikir fara fram í 1. deild kvenna í dag þar sem barist verður um mikilvæg stig bæði á toppi og botni deildarinnar.
Dagskráin hefst í Borgarnesi klukkan 15:00 þar sem botnlið Skallagríms freistar þess að landa sínum fyrstu stigum í vetur þegar liðið tekur á móti ungmennaliði Hauka. Klukkan 16:00 mætast tvö lið úr efri hlutanum í Blue-höllinni þegar taplaust lið Keflavíkur b fær Breiðablik í heimsókn. Loks lýkur deginum í Breiðholti klukkan 18:00 þegar ÍR tekur á móti Þór frá Akureyri.
Leikir dagsins í 1. deild kvenna:
15:00 Skallagrímur – Haukar u
16:00 Keflavík b – Breiðablik
18:00 ÍR – Þór Akureyri




