Hamarsmenn tryggðu sér dýrmæt tvö stig í 4. umferð 1. deildar karla með 108–97 sigri gegn nýliðum KV í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld. Heimamenn sýndu mikinn sóknarþunga í fjörugum og stigaháum leik og jöfnuðu þar með Vesturbæinga að stigum með tvo sigra eftir fjórar umferðir.
Rætt var við Hallgrím Brynjólfsson, þjálfara Hamars, í spilaranum hér að neðan.




