HomeFréttirSemja við Sprite til þriggja ára

Semja við Sprite til þriggja ára

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur tryggt sér nýjan bakhjarl en sambandið og drykkjarvöruframleiðandinn Sprite hafa undirritað samstarfssamning sem gildir út árið 2029.

Samkvæmt tilkynningu frá KKÍ felur samkomulagið í sér að vörumerkið verður áberandi á helstu viðburðum sambandsins á næstu þremur árum. Þar á meðal er sýnileiki á leikjum A-landsliða karla og kvenna, á miðlum sambandsins og í kringum VÍS-bikarvikuna. Fram kemur að markmiðið sé að byggja á alþjóðlegri tengingu vörumerkisins við götukörfubolta og ungmennamenningu til að efla upplifun iðkenda og áhugafólks hér á landi.

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, fagnar nýjum samstarfsaðila og bendir á sögu vörumerkisins innan íþróttarinnar: „Við erum ótrúlega spennt að vinna með SPRITE enda er sá drykkur með sterkar körfuboltatengingar í sögulegu samhengi. Við leitumst alltaf eftir því að vinna með aðilum sem gefa mikið af sér sem á sannarlega við í þessu tilviki.“

Af hálfu samstarfsaðilans segir Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, að markmiðið sé að ná til samfélagsins í kringum íþróttina fremur en að einskorðast við hefðbundnar auglýsingar: „Körfubolti snýst ekki bara um það sem gerist inni á vellinum, heldur líka um menninguna, orkuna og samfélagið í kringum íþróttina. Sprite hefur lengi verið hluti af þeirri menningu á alþjóðavísu og okkur finnst spennandi að styrkja þau tengsl hér á Íslandi. Við viljum vera meira en merki á auglýsingaskilti og hlökkum til að vinna með KKÍ að því að skapa skemmtilega upplifun fyrir körfuboltaáhugafólk um allt land.“

Fréttir
- Auglýsing -