HomeBikarkeppniFjórir leikir á dagskrá í VÍS bikar karla í kvöld

Fjórir leikir á dagskrá í VÍS bikar karla í kvöld

32-liða úrslitum VÍS bikars karla lýkur í kvöld með fjórum áhugaverðum leikjum þar sem sæti í 16-liða úrslitum eru í húfi.  

Fyrsti leikur kvöldsins hefst klukkan 19:00 þegar Laugdælir/Uppsveitir taka á móti KV. Klukkan 19:15 hefjast tveir leikir; annars vegar fær 1. deildar lið Hauka bikarmeistara Tindastóls í heimsókn á Ásvelli og hins vegar mætast ÍA og Álftanes á Akranesi. Síðasti leikur umferðarinnar fer svo fram í Smáranum í Kópavogi klukkan 19:30 þar sem Breiðablik og Grindavík mætast í stórleik kvöldsins.

Fréttir
- Auglýsing -