HomeBikarkeppniÁtta leikir á dagskrá í VÍS bikar karla í dag

Átta leikir á dagskrá í VÍS bikar karla í dag

Heilmikið er á dagskrá í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla í dag þar sem leikið er frá síðdegi fram á kvöld.

Dagurinn hefst klukkan 15:00 með tveimur viðureignum þegar Afturelding tekur á móti Hamri og Fjölnir fær Hött í heimsókn. Klukkan 16:00 mætast Skallagrímur og KR í Borgarnesi áður en Víðir og Njarðvík eigast við klukkan 17:30.  

Tveir leikir eru á dagskrá klukkan 18:00 en þá fær Aþena/Leiknir R lið Vestra í heimsókn samhliða stórleik Þórs Þorlákshafnar og Vals. Hálftíma síðar, klukkan 18:30, tekur b-lið KR á móti ÍR í Vesturbænum áður en leikjadeginum lýkur á Selfossi þar sem heimamenn taka á móti Stjörnunni klukkan 19:15.

Fréttir
- Auglýsing -