HomeBikarkeppniSindri og Fjölnir áfram í VÍS bikarnum eftir örugga útisigra

Sindri og Fjölnir áfram í VÍS bikarnum eftir örugga útisigra

Sindri og Fjölnir tryggðu sér sæti í næstu umferð VÍS bikarsins í dag með sannfærandi stórsigrum á útivelli.  

Í karlaflokki hafði úrvalsdeildarlið Sindra öll völd gegn Þór á Akureyri og vann 107–82. Kaleb Lamar Higgins fór á kostum hjá gestunum með tvennu, 23 stig og tólf stoðsendingar, en Craig Lecesne bætti við 17 stigum. Jalen Green dró vagninn hjá Þórsurum með 26 stig.  

Í kvennaflokki unnu Fjölniskonur öruggan 93–57 sigur á b-liði Keflavíkur eftir að hafa skorað 32 stig í fyrsta leikhluta. Arna Rún Eyþórsdóttir skilaði 21 stigi og sjö fráköstum fyrir Fjölni og Elín Heiða Hermannsdóttir bætti við 19 stigum. Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir skoraði 19 stig fyrir Keflavík b.

Fréttir
- Auglýsing -