Körfuboltabúðir Brynjars Þórs og Ármanns verða haldnar í haustfríi grunnskólanna dagana 22. til 26. október. Æft verður í Kennaraháskólanum 22. og 23. október en síðasti dagurinn, 26. október, fer fram í Laugardalshöll.
Æfingatímum er skipt eftir aldri; 1. til 6. bekkur æfir frá klukkan 9:00 til 12:00 og 7. til 10. bekkur frá klukkan 13:00 til 15:00. Boðið verður upp á létt nesti á meðan á búðunum stendur og fá allir þátttakendur að auki gjafabréf frá Yuzu.
Þátttökugjald er 20.000 krónur og fer skráning fram í gegnum Abler. Foreldrar sem óska eftir því að greiða með reiðufé geta haft samband beint til að ganga frá skráningu í kerfinu.




