Stjörnumenn verða án erlends leikmanns þegar þeir taka á móti Hetti í 2. umferð Bónus deildar karla í kvöld en félagið leitar nú að eftirmanni Austin Price, samkvæmt heimildum Vísis.
Samstarfi Stjörnunnar og hins 31 árs gamla Price lauk eftir aðeins einn leik, en hann náði sér engan veginn á strik í 90–77 tapi liðsins gegn Val á dögunum þar sem hann skoraði aðeins sex stig á 27 mínútum.




