HomeBónus deildinBónus deild karla9 hlutir sem við lærðum í fyrstu umferð

9 hlutir sem við lærðum í fyrstu umferð

Fyrsta umferðin í Bónusdeild karla er afstaðin og eins og jafnan áður fer fólk á fullt flug með alls konar kenningar og ályktanir eftir fyrstu 40 mínútur hvers liðs.

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fóru þeir Davíð Eldur, Mummi Jones og Óli Dós yfir níu pælingar sem vöknuðu eftir fyrstu leikina.

Njarðvík er í miklum vandræðum

9 ofviðbrögð eftir fyrstu umferð í Bónusdeild karla

  1. Rúnar Ingi er töframaður en Njarðvík verður í fallbaráttu og í alvöru veseni
  2. Nýju reglurnar eru vafasamar og dómarar munu hætta þessu eftir 4 umferðir
  3. Náungakærleikurinn og samheldnin í Grindavík er búin
  4. Álftanes er að ofpeppast (það er í lagi)
  5. Bónusdeildin er langt frá því að verða atvinnumannadeild
  6. Aldrei vanmeta Finn Frey
  7. Emil Barja á við alltof stórt verkefni og þetta Stjörnulið lítur rosalega illa út
  8. Ármann eru að ,,over correcta” frá því í fyrra
  9. Sindri verða í úrslitakeppni (playoffs) ef þeir fá einn góðan Bosman-leikmann

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -