HomeBónus deildinBónus deild karlaHeimaklettur fimmtugur í dag

Heimaklettur fimmtugur í dag

Einn ástsælasti og sigursælasti leikmaður í sögu Njarðvíkur, Friðrik Erlendur Stefánsson – oft nefndur Heimaklettur eða Frikki Stef –, fagnar 50 ára afmæli sínu í dag.

Friðrik trónir á toppi tölfræðinnar hjá Njarðvík í efstu deild þegar kemur að fráköstum (3.510) og vörðum skotum (624). Þá hefur hann skilað 3.959 stigum og 759 stoðsendingum í samtals 390 leikjum, sem gerir hann að þriðja leikjahæsta leikmanni í sögu félagsins. Á glæstum ferli sínum varð Friðrik þrívegis Íslandsmeistari, þrívegis bikarmeistari og vann deildarmeistaratitilinn þrisvar sinnum með Njarðvík.

Karfan óskar Friðriki innilega til hamingju með hálfrar aldar afmælið.

Sjá má færslu Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í heild sinni hér að neðan:

Fréttir
- Auglýsing -