Körfuboltaveturinn er formlega genginn í garð og spennan heldur áfram að magnast.
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó í heimsókn og tóku meðal annars fyrir sérstakan topp fimm lista yfir þá þjálfara og leikmenn sem bera hvað mesta pressu á sínum herðum fyrir komandi tímabil.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

1. Arnar Guðjónsson (Tindastóll)
Hefur unnið marga bikartitla með Stjörnunni en þrátt fyrir að hafa oft stýrt frábærum liðum hefur honum aldrei tekist að vinna Íslandsmeistaratitilinn sem aðalþjálfari.

2. Dedrick Basile (Álftanes)
Hefur leikið með mörgum mjög sterkum liðum á Íslandi og verið í allra fremstu röð erlendra leikmanna, en vantar enn að landa sjálfum Íslandsmeistaratitlinum.

3. Haukur Helgi Pálsson (Álftanes)
Einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar. Hefur ekki náð að vera í toppliði síðan hann kom fyrst til Njarðvíkur árið 2015 og þó ferillinn sé kominn á seinni hlutann er hann enn frábær leikmaður og töluverð pressa á honum að fara loksins alla leið.

4. Sara Rún Hinriksdóttir (KR)
Nýkomin til KR frá Keflavík og mikil pressa á henni að rétta af hlutfall sitt í úrslitum. Er með tvo titla og þrjú töp í úrslitaeinvígum (2–3 hlutfall) á meðan leikmenn sem hún er borin saman við eins og Helena Sverrisdóttir standa í 5–2.

5. Jaka Brodnik (Keflavík) / Dominykas Milka (Haukar) / Mario Matasovic (Njarðvík)
Eru kannski ekki allir í liðum sem teljast líklegust til að verða meistarar, en þeir hafa spilað hér lengi sem atvinnumenn í fremstu röð án þess að ná að hampa Íslandsmeistaratitlinum.




