HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemja við kanadískan leikmann

Semja við kanadískan leikmann

Valur hefur samið við Marlee Ball fyrir komandi átök í Bónus deild kvenna. Ball, sem kemur til félagsins frá Englandi þar sem hún lék síðast með 3×3 landsliði Englendinga, er fædd í Kanada og á að baki háskólaferil með Algoma og Carleton áður en hún hélt í atvinnumennsku í Portúgal, Þýskalandi og Englandi.  

Jamil Abiad þjálfari bindur miklar vonir við nýja leikmanninn, en hann segir hana búa yfir góðum leikskilningi, miklum styrk undir körfunni og getu til að opna velli með öflugri þriggja stiga skotnýtingu. Sjálf kveðst Ball spennt fyrir tækifærinu á Íslandi og hlakkar til að snúa aftur í fimm á móti fimm körfubolta eftir mikla reynslu úr götuboltanum undanfarin sumur.

Fréttir
- Auglýsing -