HomeNeðri deildir1. deild karlaFalur Harðar mættur aftur og sex nýir leikmenn til liðs við KV

Falur Harðar mættur aftur og sex nýir leikmenn til liðs við KV

KV kynnti mikinn liðsstyrk fyrir komandi tímabil þar sem þjálfarinn Falur Harðarson snýr aftur á hliðarlínuna hjá félaginu.  

Jafnframt kynnti félagið sex nýja leikmenn til leiks. Þeir Óli Gunnar Gestson úr bandaríska háskólaboltanum, Hjörtur Kristjánsson úr Fjölni, Oddur Rúnar Kristjánsson úr Grindavík og Jóhannes Ragnar Hallgrímsson úr KR hafa gengið til liðs við félagið. Þá koma þeir Sturla Böðvarsson og Finnur Tómasson til liðsins á venslasamningi frá grönnunum í KR.

Fréttir
- Auglýsing -