HomeBónus deildinBónus deild karlaRun & Gun í beinni í kvöld: Tindastóll, Höttur og Sindri undir...

Run & Gun í beinni í kvöld: Tindastóll, Höttur og Sindri undir smásjánni – Arnar Guðjóns á línunni

Run & Gun verður í beinni útsendingu í kvöld þar sem áfram er hitað rækilega upp fyrir komandi körfuboltatímabil. Að þessu sinni verður sjónum beint út á land og farið ítarlega yfir lið Tindastóls, Hattar og Sindra.  

Þeir Máté Dalmay og Tommi Steindórs fá öflugan liðsauka til að kryfja málin, en sjálfur Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls verður á línunni í þættinum til að fara yfir stöðuna, undirbúning liðanna og það helsta sem fram undan er á parketinu. Þá er Blikinn Halli Karfa einnig gestur þáttarins.

Körfuboltaáhugafólk getur fylgst með beinni útsendingu hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -