HomeNeðri deildir1. deild karlaLangar þig að starfa með Körfunni?

Langar þig að starfa með Körfunni?

Karfan er ört vaxandi fréttamiðill sem leggur metnað í að segja og sýna frá öllum hliðum körfuboltans.

Til þess að mæta þeim metnaði sem hæfir körfuboltaáhugafólki leitum við að öflugum liðsauka. Okkur vantar fólk í eftirfarandi hlutverk:

 Fréttariturum og spyrlum: Til að mæta á leiki, taka viðtöl að þeim loknum og rita umfjallanir.

 Ljósmyndurum: Til að mæta á leiki og fanga stemninguna á vellinum.

 Hlaðvarpsstjórnendum: Til að halda úti þáttum, kryfja málin og ræða stöðuna í körfuboltanum.

 Pistla- og greinahöfundum: Til að fjalla um leikmenn hér heima, þvert á allar deildir, sem og íslenska leikmenn í bandaríska háskólaboltanum (NCAA).

Ef þú hefur brennandi áhuga á körfuknattleik og langar að ganga til liðs við hópinn, sendu okkur endilega línu á [email protected].

Fréttir
- Auglýsing -