HomeBónus deildinBónus deild kvennaFlautað til leiks í Bónus deild kvenna í kvöld – Þrír leikir...

Flautað til leiks í Bónus deild kvenna í kvöld – Þrír leikir á dagskrá

Keppni í Bónus deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum í 1. umferð, en allir leikirnir hefjast samtímis klukkan 19:15.  

Í Vesturbænum tekur KR á móti Stjörnunni þar sem KR freista þess að hefja leiktíðina á heimasigri gegn Garðbæingum. Á sama tíma fær Ármann erfitt verkefni á heimavelli þegar Grindavík kemur í heimsókn.  

Á Sauðárkróki er svo von á hörkuleik þegar Tindastóll tekur á móti bikarmeisturum Keflavíkur. Fyrstu umferðinni lýkur svo á morgun með tveimur leikjum þar sem Valur fær meistarana í Njarðvík í heimsókn og Haukar mæta Fjölni.  

Leikir kvöldsins í Bónus deild kvenna:

 19:15: KR – Stjarnan  

 19:15: Ármann – Grindavík  

 19:15: Tindastóll – Keflavík

Fréttir
- Auglýsing -