Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason lét strax að sér kveða þegar Bilbao vann 107–92 sigur á Manresa í opnunarleik sínum í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Tryggvi Snær skilaði góðri frammistöðu á parketinu, en hann skoraði 12 stig, tók átta fráköst, gaf tvær stoðsendingar og krækti í einn stolinn bolta í leiknum.




