Körfuboltatímabilið fór af stað með miklum látum í kvöld þegar Meistarakeppni KKÍ fór fram í IceMar-höllinni í Njarðvík. Íslandsmeistarar Njarðvíkur og bikarmeistarar Keflavíkur áttust við í miklum spennuleik þar sem Njarðvík hafði betur, 83–78, og opnaði tímabilið með titli á heimavelli.
Ásta Júlía Grímsdóttir lék sinn allra fyrsta opinbera keppnisleik í græna búningnum í kvöld eftir að hafa gengið til liðs við Njarðvík frá Val í sumar, og hófst nýi kaflinn með titli gegn nágrönnunum í Keflavík.




