Haukar fóru með afar öruggan 98–54 sigur af hólmi gegn ÍA í æfingaleik meistaraflokks karla á Ásvöllum í kvöld.
Skagamenn byrjuðu leikinn betur og leiddu 17–7 eftir fyrsta leikhluta. Eftir það tóku Haukar öll völd á vellinum, snéru taflinu við með góðum öðrum leikhluta (29–12) og leiddu í leikhléi, 36–29. Yfirburðir heimamanna héldu áfram í síðari hálfleiknum þar sem þeir bættu jafnt og þétt við forskot sitt og kláruðu leikinn með 44 stiga sigri.
Hilmir Hallgrímsson og Dominykas Milka voru stigahæstir hjá Haukum með 12 stig hvor, AC Bryant og Kristófer Kári Arnarson skoruðu 11 stig hvor, og Matt Treacy og Kristófer Breki Björgvinsson lögðu til 10 stig hvor. Í liði ÍA var Gojko Sudzum atkvæðamestur með 18 stig og 6 fráköst, fyrirliðinn Ígor Maric og Lucian Chirstofis skoruðu 9 stig hvor, og Þórarinn Frímannsson og Felix Heiðar bættu við 6 stigum hvor.





