Körfuknattleikssamband Íslands hefur opinberað árlega spá formanna, fyrirliða og þjálfara fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna. Samkvæmt spánni er Njarðvík spáð deildarmeistaratitlinum eftir að hafa fengið flest atkvæði og alls 233 stig í kjörinu.
Grindavík er spáð öðru sæti deildarinnar með 218 stig og KR er talið líklegast til að hreppa þriðja sætið með 202 stig. Haukar verma fjórða sætið með 165 stig og Tindastóll það fimmta með 140 stig. Keflvíkingum er spáð sjötta sæti með 126 stig og Valur er í sjöunda sæti með 103 stig. Í neðstu þremur sætunum eru Stjarnan í áttunda sæti með 80 stig, Ármann í níunda sæti með 52 stig og Fjölnir sem spáð er neðsta sæti deildarinnar með 31 stig.




