Tímabilið 2026–2027 hefst með formlegum hætti næstkomandi föstudagskvöld þegar Meistarakeppni KKÍ í kvennaflokki fer fram í IceMar-höllinni. Þar mætast nágrannaliðin Njarðvík og Keflavík í baráttunni um fyrsta titil vetrarins.
Flautað verður til leiks klukkan 19:15 en útsending hefst klukkan 19:05 í beinni á SÝN Sport Ísland. Miðasala á leikinn fer fram í gegnum Stubb-appið og eru stuðningsmenn beggja liða hvattir til að fjölmenna á pallana og hefja körfuboltavertíðina af krafti.




