HomeBónus deildinBónus deild karlaSkoruðu 106 stig á móti Hetti á Gastec mótinu

Skoruðu 106 stig á móti Hetti á Gastec mótinu

Sindramenn fóru með sigur af hólmi í gríðarlega fjörugum og stigaháum nágrannaslag gegn Hetti, 106–91, á Gastec æfingamótinu í Varðarhöllinni á Egilsstöðum í gærkvöldi.  

Heimamenn í Hetti byrjuðu betur og leiddu með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, 26–20, en Hornfirðingar svöruðu af krafti í öðrum leikhluta og höfðu fimm stiga forskot í hálfleik, 49–44. Leikurinn var í járnum fram á lokasprettinn og Höttur leiddi með einu stigi fyrir lokaleikhlutann, 71–70. Í fjórða leikhluta fóru leikmenn Sindra hins vegar á kostum í sókninni, skoruðu 36 stig gegn 20 stigum Hattar og tryggðu sér öruggan 15 stiga sigur.  

Kaleb Higgins fór algjörlega á kostum í liði Sindra og var óstöðvandi með 39 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst. Fyrirliðinn Gísli Hallsson átti einnig mjög góðan leik og setti niður 18 stig, þar af fjóra þrista, og Branislav Vujadinovic bætti við 11 stigum og 5 stoðsendingum.  

Í liði Hattar var Marquis Jackson stigahæstur með 19 stig og 5 stoðsendingar, Josh Martin skilaði tvöfaldri tvennu með 17 stigum og 10 fráköstum, Aleksandar Pantelic skoraði 15 stig og Sveinn Búi Birgisson bætti við 12 stigum.

Fréttir
- Auglýsing -