HomeBikarkeppniLjóst hvaða lið mætast í 32-liða úrslitum VÍS bikarsins

Ljóst hvaða lið mætast í 32-liða úrslitum VÍS bikarsins

Dregið var í 32-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna í beinni útsendingu frá húsakynnum KKÍ í Laugardalnum fyrr í dag. Sú nýbreytni var tekin upp að lið úr Bónus deildunum gátu ekki dregist saman í þessari fyrstu umferð, og tók dráttur dagsins mið af því.

Kvennamegin voru 17 lið skráð til leiks og fer því aðeins fram ein viðureign í 32-liða úrslitunum, en hún verður leikin 17. eða 18. október þegar Keflavík b tekur á móti Fjölni. Hin fimmtán liðin – Aþena, Ármann, Breiðablik, Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn – sátu öll hjá og fara beint í pottinn þegar dregið verður í 16-liða úrslitin.

Í karlaflokki voru 29 lið skráð til keppni og var því dregið í 13 viðureignir sem fara fram dagana 18. og 19. október. Samkvæmt reglugerð eiga lið úr neðri deildum alltaf heimaleikjaréttinn. Þar mætast Þór Akureyri og Sindri, ÍA og Álftanes, Skallagrímur og KR, Haukar og Tindastóll, Þór Þorlákshöfn og Valur, Aþena/Leiknir og Vestri, Breiðablik og Grindavík, Víðir og Njarðvík, Laugdælir/Uppsveitir og KV, Selfoss og Stjarnan, KR b og ÍR, Afturelding og Hamar, ásamt rimmu Fjölnis og Hattar. Ármann, Keflavík og Snæfell sátu öll hjá og eru komin beint áfram í 16-liða úrslitin.

Úrslitahelgi VÍS bikarsins verður leikin með hefðbundnu sniði dagana 2.–7. febrúar 2027 í Smáranum í Kópavogi, þar sem ráðist verður í undanúrslit og úrslit meistaraflokka ásamt öllum bikarúrslitum yngri flokka. Undanúrslit kvenna fara fram miðvikudaginn 3. febrúar og úrslitaleikurinn föstudaginn 5. febrúar, en undanúrslit karla fara fram fimmtudaginn 4. febrúar og úrslitaleikurinn laugardaginn 6. febrúar.

Fréttir
- Auglýsing -