HomeBónus deildinBónus deild kvennaFyrirliðinn framlengir við Fjölni

Fyrirliðinn framlengir við Fjölni

Hulda Ósk Bergsteinsdóttir verður áfram í röðum Fjölnis í Grafarvogi og tekur slaginn með kvennaliði félagsins í efstu deild á komandi leiktíð.  

Hulda er reynslumesti leikmaður liðsins og tók hún við fyrirliðabandinu í sumar. Í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Fjölnis kemur fram að það verði gríðarlega mikilvægt fyrir félagið að njóta reynslu hennar og leiðtogahæfileika í þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru í deildinni á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -