HomeBónus deildinBónus deild karlaHeimamaðurinn tekur slaginn með Sindra í Bónus deildinni

Heimamaðurinn tekur slaginn með Sindra í Bónus deildinni

Sigurður Guðni Hallsson verður áfram í röðum Sindra og tekur slaginn með sínu félagi í Bónus deild karla í vetur.

Sigurður er fæddur og uppalinn Hornfirðingur sem hefur gengið allan stigann hjá félaginu, allt frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk. Í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Sindra er leikmanninum hrósað í hástert fyrir eljusemi, mikinn vinnusamleika og hollustu við félagið en tekið er fram að hann skilji alltaf allt eftir á vellinum fyrir liðið og verði mikilvægur hlekkur þegar félagið hefur leik í efstu deild á komandi leiktíð.

Fréttir
- Auglýsing -