HomeBikarkeppniDregið í 32-liða úrslit VÍS bikarsins

Dregið í 32-liða úrslit VÍS bikarsins

Dregið verður í 32-liða úrslit VÍS bikarkeppni karla og kvenna hjá KKÍ á morgun, þriðjudaginn 22. september, klukkan 13:15. Drátturinn fer fram á 3. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og verður jafnframt sýndur í beinu streymi.

Alls eru 29 lið skráð til leiks í karlaflokki og verður því dregið í 13 viðureignir í 32-liða úrslitunum, á meðan þrjú lið sitja hjá og fara beint áfram í 16-liða úrslitin. Liðin sem taka þátt í pottinum eru Afturelding, Álftanes, Ármann, Aþena/Leiknir, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Hamar, Haukar, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KR, KR b, KV, Laugdælir/Uppsveitir, Njarðvík, Selfoss, Sindri, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Vestri, Víðir, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.

Kvennamegin eru 17 lið skráð til keppni sem þýðir að aðeins verður dregið í eina viðureign í 32-liða úrslitum og fara hin 15 liðin beint í 16-liða úrslit. Liðin sem eru skráð í kvennaflokki eru Aþena, Ármann, Breiðablik, Fjölnir, Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, Keflavík b, KR, Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.

Fréttir
- Auglýsing -