Meistaraflokkur karla hjá Fylki hóf leiktíðina í 2. deild af miklum krafti þegar liðið lagði Reykdæli með 88–61 sigri í Fylkishöllinni.
Árbæingar lögðu grunninn að sigrinum strax í upphafi leiks en mikill skothríð einkenndi fyrsta leikhlutann þar sem heimamenn tóku öruggt frumkvæði. Ellert fór hreinlega á kostum í fyrsta leikhluta þar sem hann smellti niður sex þriggja stiga körfum og endaði sem stigahæsti leikmaður Fylkis með 23 stig. Óðinn átti sömuleiðis frábæran leik og skoraði 20 stig, á meðan Arnaldur skilaði 10 stigum.
Fylkismenn juku forskot sitt jafnt og þétt eftir því sem leið á leikinn, en ánægjulegt var að sjá iðkendur úr yngri flokkum félagsins fá dýrmætar mínútur með eldri leikmönnum og skrá sig á blað í stigaskorinu í sannfærandi sigri.




