HomeÚti í heimiEvrópaFór vel af stað í Hollandi þrátt fyrir veikindi

Fór vel af stað í Hollandi þrátt fyrir veikindi

Hanna Þráinsdóttir og stöllur hennar í ZZ Leiden hófu keppnistímabilið af miklum krafti í dag með öruggum 85–67 sigri gegn Triple Threat í fyrstu umferð efstu deildar kvenna í hollenska körfuboltanum.  

Hanna lét mikið að sér kveða þótt hún hafi spilað veik í leiknum, en á þeim sextán mínútum sem hún spilaði skilaði hún 8 stigum, 7 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Frammistaða hennar skilaði 19 framlagspunktum, sem gerði hana að framlagshæsta leikmanni allra á vellinum í sannfærandi sigri Leiden.

Fréttir
- Auglýsing -