HomeNeðri deildir1. deild karlaHaukar meistarar á Lifetrack-Hofland mótinu eftir sigur gegn Selfossi

Haukar meistarar á Lifetrack-Hofland mótinu eftir sigur gegn Selfossi

Haukar stóðu uppi sem sigurvegarar á Lifetrack-Hofland æfingamótinu eftir 108–90 sigur gegn Selfossi í úrslitaleik á Selfossi í kvöld.  

Fyrri hálfleikur var afar jafn og spennandi þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna en Haukar leiddu með tveimur stigum í leikhléi, 44–42. Í síðari hálfleiknum reyndust Hafnarfjarðarmenn hins vegar sterkari aðilinn á vellinum, juku jafnt og þétt við forskot sitt og sigldu öruggum 18 stiga sigri í höfn. Matt fór fyrir liði Hauka með 26 stig, AC skoraði 20 stig og Milka bætti við 15 stigum. Í liði heimamanna á Selfossi var Aristote atkvæðamestur með 26 stig, Avery skilaði 17 stigum og Birkir Máni bætti við 15 stigum.  

Í öðrum leikjum lokadagsins hafði Snæfell betur gegn Skallagrími í leiknum um 3. sætið, á meðan Fjölnir tryggði sér 5. sæti mótsins með sigri gegn Hamri.

Fréttir
- Auglýsing -