HomeBónus deildinBónus deild karlaUppfærð spá fyrir Bónusdeild karla

Uppfærð spá fyrir Bónusdeild karla

Spennan heldur áfram að magnast fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla sem rúllar af stað á næstu dögum.

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fengu strákarnir til sín góða gesti, þá Heisa Högg og Jón Frí, og fóru yfir stöðuna á liðunum eftir síðustu vendingar, æfingaleiki og breytingar á leikmannahópum.

Afrakstur umræðunnar er ný og uppfærð spá þáttarins fyrir tímabilið. Þar er Álftanesi spáð toppsætinu á meðan Ármann og Sindri sitja á botninum, en mikil barátta er fyrirsjáanleg um miðja deildina og um sæti í úrslitakeppninni.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Uppfærð spá Aukasendingarinnar fyrir Bónusdeild karla:

1. Álftanes

2. Tindastóll

3. Grindavík

4. KR

5. Keflavík

6. Stjarnan

7. Valur

8. Njarðvík

9. ÍR

10. Höttur

11. Sindri

12. Ármann

Fréttir
- Auglýsing -