HomeBónus deildinBónus deild karlaSpútniklið síðustu 30 ára í efstu deild karla

Spútniklið síðustu 30 ára í efstu deild karla

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar tóku þeir Heisi Högg og Jón Frí nostalgíska yfirferð yfir sögu spútnikliða í efstu deild karla á síðustu 30 árum. Rætt var hvað einkennir þau félög sem koma upp með látum, hvað þarf til að festa sig í sessi á meðal þeirra bestu og hvers vegna sum ævintýri endast á meðan önnur fjara út.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

1. Stjarnan

Gerir best allra spútnikliða sögunnar. Garðbæingar náðu að festa sig í sessi sem eitt helsta stórveldi („powerhouse“) íslensks körfubolta. Eftirminnileg lið, aragrúi bikartitla, stórkostlegt yngriflokkastarf og auðvitað Íslandsmeistaratitill sem innsiglaði stöðu þeirra á toppnum.

2. Þór Þorlákshöfn

Tóku um 15 ára magnað skeið í efstu deild með frábæran íslenskan kjarna í fararbroddi. Liðið fór ítrekað langt í úrslitakeppninni og kórónaði ævintýrið með glæsilegum Íslandsmeistaratitli. Tvö þúsund manna bæjarfélag sem hefur kýlt margfalt upp fyrir sína þyngd; þótt smá lægð sé til staðar eftir fallið í vor virðast þeir ætla að keyra af fullum krafti á 1. deildina í vetur og drífa sig beint upp aftur.

3. Snæfell

Smullu upp úr aldamótum með gríðarlega öflugan íslenskan kjarna. Hólmarar gerðu alvöru tilkall til allra titla árum saman en voru oft stoppaðir af ógnarsterku Keflavíkurliði, áður en þeir kláruðu dæmið og tóku Íslandsmeistaratitilinn á eftirminnilegan hátt árið 2010.

4. ÍA

Komu upp með miklum látum árið 1993, fundu lyktina af úrslitakeppninni og komust í bikarúrslit gegn Haukum. Hápunkturinn var árið 1998 þegar þeir slógu út deildarmeistara Grindavíkur undir forystu Aleksanders Ermolinskij og Damons Johnson. Eftir það tóku við 25 afar þung ár, en þessi misserin virðist vera mikill metnaður á Skaganum við að rífa starfið aftur í gang.

5. KFÍ (nú Vestri)

Gerðu hlutina með svipuðum hætti og Skagamenn. Þeir létu mikið að sér kveða í úrslitakeppninni seint á tíunda áratugnum, komust í bikarúrslit og sköpuðu gríðarlega stemmningu á Ísafirði. Ævintýrið fór að fjara út upp úr aldamótum og liðið varð síðar algert jójó-lið milli deilda.

6. Hamar

Hvergerðingar áttu tvö góð skeið í efstu deild þar sem mikill kraftur og stemmning var í kringum félagið. Liðið tefldi fram stórum íslenskum prófílum en náði aldrei alveg sama flugi og ÍA eða KFÍ gerðu á sínum tíma.

Reynslan sýnir okkur að það þarf mun meira en bara góða leikmenn til þess að spútniklið í efstu deild festi sig í sessi til frambúðar. Þau lið sem ílengjast í deildinni og enda á að landa stórum titlum eiga það öll sameiginlegt að byggja á sterkum íslenskum kjarna, öflugu sjálfboðaliðastarfi og dyggri stuðningsmannasveit.

Fréttir
- Auglýsing -