ÍA hefur framlengt samning sinn við miðherjann Felix Heiðar Magnason út næstu leiktíð.
Felix, sem er fæddur árið 2006, er uppalinn Skagamaður og stór og stæðilegur leikmaður undir körfunni. Í tilkynningu félagsins kemur fram að mikil ánægja ríki með áframhaldandi samstarf en Felix hefur lagt mikið á sig undanfarin misseri og verður spennandi að fylgjast með frekari framgöngu hans í gulu treyjunni á komandi keppnistímabili.




