Valskonur fögnuðu 90–79 sigri gegn Haukum í æfingaleik meistaraflokks kvenna á Ásvöllum í kvöld.
Gestirnir frá Hlíðarenda leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 24–20, og höfðu sex stiga forskot í hálfleik, 41–35. Valsliðið hélt frumkvæðinu í síðari hálfleiknum og gerði gott betur á lokasprettinum með því að vinna fjórða leikhluta 25–18 og tryggja sér ellefu stiga sigur.
Í liði Vals fór Dzana Crnac fyrir sínum konum með 26 stig og 7 fráköst, Reshawna Stone skilaði 21 stigi og 9 stoðsendingum, Alyssa Cerino skoraði 17 stig og Sara Líf Boama setti 14 stig ásamt því að taka 10 fráköst. Hjá Haukum dró Jada Guinn vagninn í sókninni með glæsilega frammistöðu og skoraði 31 stig ásamt því að taka 6 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir skoraði 19 stig og Rósa Björk Pétursdóttir bætti við 11 stigum.





