HomeBónus deildinBónus deild karlaTindastóll hafði betur gegn Hetti í upphafsleik Gastec mótsins

Tindastóll hafði betur gegn Hetti í upphafsleik Gastec mótsins

Tindastóll hrósaði 69–65 sigri gegn heimamönnum í Hetti í opnunarleik Gastec æfingamótsins í Varðarhöllinni á Egilsstöðum í kvöld.

Leikurinn var hnífjafn framan af en Höttur leiddi með tveimur stigum í hálfleik, 35–33. Í síðari hálfleiknum reyndust Skagfirðingar hins vegar sterkari á lokasprettinum og innbyrtu fjögurra stiga sigur eftir mikla baráttu beggja liða.

Hjá Tindastóli voru þeir Doc Bost og Taiwo Badmus stigahæstir með 15 stig hvor, en Ade Murkey bætti við 12 stigum og tók 10 fráköst. Þá skiluðu Ragnar Ágúst og Dziugas Slavinskas 8 stigum hvor.

Í liði Hattar fór Marquis Jackson fyrir sínum mönnum í sókninni með 13 stig og 6 fráköst. Nemanja Knezevic átti öflugan leik undir körfunni með 9 stig og 13 fráköst, Josh Martin skoraði 8 stig og reif niður 13 fráköst, og Ásmundur Múli Ármannsson bætti við 8 stigum.

Fréttir
- Auglýsing -