Nýjasti þáttur körfuboltahlaðvarpsins Run & Gun lenti í spilurum í morgun og er nú aðgengilegur öllum hlustendum undir heiti þáttarins á hlaðvarpsveitum.
Í þættinum er hitað rækilega upp fyrir komandi átök með góðum gestum, en þeir Daníel Guðni úr Keflavík og Rúnar Ingi úr Njarðvík mættu í viðtal. Þar fara þeir yfir stöðuna á sínum liðum, undirbúninginn fyrir veturinn og helstu vendingar sem fram undan eru í boltanum.
Þátturinn lofar hörku umræðu og er skylduhlustun fyrir alla sem vilja fylgjast grannt með því sem er að gerast í íslenska körfuboltanum. Hægt er að nálgast þáttinn núna á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafninu Run & Gun.




