HomeNeðri deildir1. deild karlaSelfoss og Haukar mætast í úrslitum Lifetrack-Hofland mótsins

Selfoss og Haukar mætast í úrslitum Lifetrack-Hofland mótsins

Það verða Selfoss og Haukar sem mætast í úrslitaleik Lifetrack-Hofland æfingamótsins eftir sigra í gærkvöldi. Úrslitaleikurinn fer fram á Selfossi næstkomandi sunnudagskvöld klukkan 19:00.

Selfyssingar tryggðu sér sæti í úrslitunum með 92–78 sigri gegn Fjölni. Aristote Bissokot leiddi stigaskor Selfoss með 26 stig, en Avery Sullivan átti magnaðan leik og landaði þrefaldri tvennu með 21 stigi, 10 fráköstum og 10 stoðsendingum. Fjölnir Morthens bætti við 15 stigum fyrir sigurvegarana. Í liði Fjölnis var Laugi atkvæðamestur með 26 stig, Lewis skoraði 19 og Rafn skilaði 12 stigum.

Í hinum leiknum fóru Haukar á kostum og unnu stórsigur á heimamönnum í Hamri í Hveragerði, 145–71, og tryggðu sér þar með úrslitaleikinn gegn Selfyssingum.

Fréttir
- Auglýsing -