Kjartan Atli Kjartansson er genginn aftur til liðs við karlalið Álftaness í körfubolta og verður aðstoðarþjálfari Baldurs Ragnarssonar á komandi keppnistímabili, en frá þessu greindi hann í hlaðvarpinu Besta sætið á Vísi.
Kjartan tók við liði Álftaness í 1. deildinni árið 2022 og fór strax upp með liðið í efstu deild. Undir hans stjórn komst liðið í undanúrslit bikarsins og Íslandsmótsins áður en hann lét af störfum rétt fyrir síðustu jól.
Aðspurður í Besta sætinu segir Kjartan að Baldur hafi einfaldlega hringt og beðið sig um að koma með sér inn í teymið. Kjartan segir hlutverk aðstoðarþjálfara henta sér frábærlega í dag þar sem hann starfar hjá Sýn og gegnir jafnframt starfi bæjarfulltrúa í Garðabæ, sem gerir það að verkum að hann hefði hvorki haft tíma né orku í að vera aðalþjálfari. Hann hlakki mikið til að vera á hliðarlínunni, miðla af reynslu sinni og aðstoða Baldur og skemmtilegan leikmannahóp Álftnesinga í vetur.




