Körfuknattleiksdeild Hattar stendur fyrir hinu árlega Gastec æfingamóti dagana 17. til 21. september næstkomandi í Varðarhöllinni á Egilsstöðum.
Auk heimamanna í Hetti taka lið Tindastóls og Sindra þátt í mótinu og verður leikið eftirfarandi daga:
Fimmtudagur 17. september kl. 19:15: Höttur – Tindastóll
Laugardagur 19. september kl. 14:00: Tindastóll – Sindri
Mánudagur 21. september kl. 19:15: Höttur – Sindri
Aðgangseyrir er 1.500 krónur fyrir 16 ára og eldri en frítt er inn fyrir börn, auk þess sem boðið verður upp á opna sjoppu alla leikdagana.




