HomeFréttirÓstöðvandi í seinni hálfleik: Bandaríkin heimsmeistarar í tólfta sinn

Óstöðvandi í seinni hálfleik: Bandaríkin heimsmeistarar í tólfta sinn

Bandaríska kvennalandsliðið tryggði sér sinn fimmta heimsmeistaratitil í röð eftir 97–79 sigur gegn Frakklandi í úrslitaleik HM í kvöld.

Frakkar bitu vel frá sér framan af og höfðu tveggja stiga forystu í leikhléi, 45–43. Bandaríkjakonur mættu hins vegar dýrvitlausar til leiks í síðari hálfleiknum og gerðu út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta þar sem þær gjörsamlega völtuðu yfir franska liðið, 30–12.

Breanna Stewart bar hitann og þungann í bandaríska liðinu með 22 stig og 10 fráköst, Jackie Young skoraði 18 stig og Caitlin Clark setti 12 stig. Hjá Frökkum, sem fögnuðu sínum besta árangri í sögunni með silfri, drógu Dominique Malonga (21 stig) og Gabby Williams (20 stig, 7 stoðsendingar) vagninn.

Í leiknum um þriðja sætið hafði Spánn mikla yfirburði gegn heimakonum í Þýskalandi og tryggði sér bronsið með 81–58 sigri.

Fréttir
- Auglýsing -