HomeNeðri deildir1. deild karlaSkallagrímur lagði Hamar eftir framlengingu í Lifetrack-Hofland mótinu

Skallagrímur lagði Hamar eftir framlengingu í Lifetrack-Hofland mótinu

Skallagrímur hafði betur gegn Hamri, 105–97, eftir framlengdan háspennuleik í annarri viðureign Lifetrack-Hofland æfingamótsins í gærkvöldi.

Leikurinn var afar jafn og sveiflukenndur. Staðan var 46–40 fyrir Hamar í hálfleik, en Skagamenn og Borgnesingar skiptust á áhlaupum í síðari hálfleik. Borgnesingar jöfnuðu metin í 87–87 undir lok venjulegs leiktíma og reyndust sterkari á sprettinum í framlengingunni þar sem þeir skoruðu 18 stig gegn 10 stigum Hvergerðinga.

Atkvæðamestur í liði Skallagríms var Miljan með 25 stig og 11 fráköst, en næstir honum komu Marino með 20 stig, Milo með 18 stig og Eiríkur með 17 stig. Hjá Hamri fór Joshua mikinn með 19 stig og 11 fráköst, Nick skilaði 14 stigum, og þeir Árni Elmar og Birkir bættu við 13 og 12 stigum.

Á mótinu vann Fjölnir lið Snæfells 79–75 í fyrsta leik. Mótið heldur áfram í næstu viku þar sem Selfoss og Snæfell mætast á mánudag áður en Haukar og Skallagrímur eigast við á þriðjudag.

Fréttir
- Auglýsing -